Næstkomandi fimmtudag er hrekkjavaka og ætlar Síldarminjasafn Íslands á Siglufirði að endurtaka leikinn frá því í fyrra, en reyna á sama tíma að gera viðburðinn enn betri segir á facebooksíðu safnsins.
Það verður því líf og fjör á safnsvæðinu frá kl. 17:00 – 19:00.
Afturgöngur og aðrar vættir vakna til lífsins í Gránu og eru allir þeir sem þora velkomnir í heimsókn. Við mælumst þó til þess að börn yngri en 12 ára komi í fylgd fullorðinna.
Húlladúllan heimsækir okkur og bregður sér í líki eldnornar og leikur listir sínar utandyra.
Á Síldarkaffi verður opið fram á kvöld og allskonar draugalegar veitingar í boði.
Mynd/Síldarminjasafn Íslands