Rokksveitin Soma, sem gerði garðinn frægan árið 1997 með laginu Grandi Vogar II (Má ég gista) og plötunni Föl, hefur gefið út sitt fyrsta lag síðan hljómsveitin hætti snögglega störfum árið 1998.

Lagið nefnist Fólk eins og fjöll, og verður leikið í þættinum Tíu Dropar, sem er á dagskrá FM Trölla alla sunnudaga kl. 13 – 15.

Soma var á sínum tíma þekkt fyrir kröftuga og grípandi rokktónlist og naut töluverðra vinsælda, enda var sveitin ötul við spilamennsku um allt land.

Allir meðlimir sveitarinnar frá útgáfu plötunnar, sex talsins, taka þátt í endurkomunni, en þeir höfðu ekki hist allir saman síðan árið 1998. Á síðasta ári ákváðu þeir hins vegar að láta reyna á hvort rokkneistinn væri enn til staðar í bandinu og það reyndist heldur betur raunin. Þótt Soma hafi enn ekki náð að koma fram opinberlega vegna samkomutakmarkana hefur sveitin unnið ötullega að nýju efni og fyrsta lagið, Fólk eins og fjöll, hefur nú litið dagsins ljós.

Lagið sýnir að Soma hefur engu gleymt þrátt fyrir langt hlé. Fólk eins og fjöll er grípandi rokklag með miklum stíganda og gefur góð fyrirheit um að Soma sé tilbúin til að stimpla sig inn í íslensku tónlistarsenuna á nýjan leik.

Fólk eins og fjöll má finna á Spotify, auk þess sem tónlistarmyndband er væntanlegt á næstunni.

Meðlimir Soma eru: Guðmundur Annas Árnason söngvari, Snorri Gunnarsson gítarleikari, Halldór Sölvi Hrafnsson gítarleikari, Þorlákur Lúðvíksson hljómborðsleikari, Kristinn Jón Arnarson bassaleikari og Jónas Hliðar Vilhelmsson, trommuleikari.