Ný akstursáætlun skólarútu tekur gildi mánudaginn 22. ágúst en þá hefst skólastarf Grunnskóla Fjallabyggðar.

Almennir farþegar eru velkomnir í skólarútu ef sæti eru laus en nemendur grunnskóla, menntaskóla og starfsfólk sveitarfélagsins ganga fyrir sætum, í þessari röð.