Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar, þriðjudaginn 4. júní, var samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum að breyta heiti sveitarfélagsins úr Akureyrarkaupstað í Akureyrarbæ.

Samþykktin er með fyrirvara um jákvæða umsögn örnefnanefndar og staðfestingu samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins. Þegar nýtt heiti hefur verið staðfest af ráðuneytinu skal samþykkt um stjórn sveitarfélagsins breytt til samræmis og tekur nýtt heiti gildi við gildistöku hennar, sbr. 5. og 9. grein sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Dagana 7. til 25. mars sl. gerði Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri (RHA) könnun þar sem m.a. var spurt um nafn á sveitarfélaginu. Spurningin var svohljóðandi: Núverandi nafn sveitarfélagsins er Akureyrarkaupstaður, hvort vilt þú halda því nafni eða breyta því í Akureyrarbær?

Niðurstöðurnar voru nokkuð afgerandi en 77% þeirra sem tóku afstöðu vildu breyta nafninu í Akureyrarbær en 23% vildu halda nafninu Akureyrarkaupstaður.

Til að forðast allan misskilning skal tekið fram að hér var einungis lögð til og samþykkt breyting á formlegu heiti sveitarfélagsins. Akureyri heitir að sjálfsögðu eftir sem áður Akureyri líkt og Blönduós heitir Blönduós en sveitarfélagið Blönduósbær og Reykjavík heitir áfram Reykjavík þótt sveitarfélagið heiti Reykjavíkurborg.

Forsíðumynd: Akureyri. Mynd: Anders Peter.