Breytingar á reglugerð varðandi takmarkanir á samkomum
Heilbrigðisráðuneytið hefur gert tvær breytingar á reglugerð varðandi núgildandi takmarkanir á samkomum vegna COVID-19 farsóttarinnar en reglugerðin gildir sem fyrr til og með 13. ágúst.
- Ákvæði um fjölda- og nálægðartakmörkun sem snýr að börnum
Í reglugerðinni er ákvæði um að fjölda- og nálægðartakmarkanir nái einnig til barna sem fædd eru 2016 og fyrr. Til að taka af öll tvímæli var ákveðið að setja inn þá reglugerðarbreytingu að þær takmarkanir nái jafnframt til 5. greinar reglugerðarinnar.
- Ákvæði um loftræstingu fellt út
Seinni breytingin snýr að því að fella brott ákvæði um loftræstingu sem reyndist nokkuð óljóst og því erfitt í framkvæmd. Það er því nú í höndum framkvæmdaaðila að leggja mat á hvort unnt sé virða 1 metra nálægðartakmörkin í starfsemi sinni, ella þarf að bera andlitsgrímur.
Sjá reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar nr. 587/2021
Sjá breytingu á reglugerð, dagsett 26. júlí, 2021.
Mynd/aðsend