Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum í júní 2021 samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var 1.296 og var upphæð viðskiptanna um 68 milljarður króna þegar miðað er við útgáfudagsetningu.

Þegar júní 2021 er borinn saman við maí 2021 fækkar kaupsamningum um 9,9% og velta lækkar um 7,1%. Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði samningum um 6,3% á milli mánaða og velta lækkaði um 6,1%.

AllsSérbýliFjölbýliAtvinnueignirSumarhúsAnnað
Heildarvelta í síðasta mánuði68.22619.52341.5344.8181.2131.137
Þar af höfuðborgarsvæðið48.025 10.033 33.896 3.887 2080
AllsSérbýliFjölbýliAtvinnueignirSumarhúsAnnað
Kaupsamningar í síðasta mánuði1.296314850565125
Þar af höfuðborgarsvæðið7681006273290


Hægt er að sjá veltu á fasteignamarkaði frá júní 2006 til dagsins í dag í skjali sem Þjóðskrá gefur út þar sem gögnunum er skipt í flokka eftir landshlutum og tegund húsnæðis.

Fréttin er birt með þeim fyrirvara að ekki er búið að skanna og skrá alla samninga sem heyra til síðasta mánaðar, tölurnar verða því uppfærðar. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar í fasteignagátt Þjóðskrár