Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum í mars 2021 samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var 1.648 og hafa aldrei verið fleiri frá árinu 2006.

Upphæð viðskiptanna var um 85 milljarðar króna þegar miðað er við útgáfudagsetningu. Þegar mars 2021 er borinn saman við febrúar 2021 fjölgar kaupsamningum um 25,2% og velta eykst um 29,1%. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði samningum um 21,4% á milli mánaða og velta hækkaði um 28%.

AllsSérbýliFjölbýliAtvinnueignirSumarhúsAnnað
Heildarvelta í síðasta mánuði85.01323.85654.2994.4121.2561.194
Þar af höfuðborgarsvæðið62.104 12.865 45.599 3.359 59222
AllsSérbýliFjölbýliAtvinnueignirSumarhúsAnnað
Kaupsamningar í síðasta mánuði1.6483781.110744838
Þar af höfuðborgarsvæðið1.0201318404225



Hægt er að sjá veltu á fasteignamarkaði frá júní 2006 til dagsins í dag í skjali sem Þjóðskrá gefur út þar sem gögnunum er skipt í flokka eftir landshlutum og tegund húsnæðis. Fréttin er birt með þeim fyrirvara að ekki er búið að skanna og skrá alla samninga sem heyra til síðasta mánaðar, tölurnar verða því uppfærðar. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar í fasteignagátt Þjóðskrár