Allt að 1400 gestir í Skarðsdal um helgina - Birgir: „Veðrið veitti frönskunum harða samkeppni“

Snævi þaktar hlíðar og upplýst skíðasvæði skapa ævintýralega stemningu í Skarðsdal.
Mynd: Facebook / Skíðasvæðið Skarðsdal Siglufirði

Mikil aðsókn var á Skíðasvæðið í Skarðsdal á Siglufirði um helgina þegar veður og færi léku við gesti. Brekkurnar voru nýtroðnar og ferskar, púðrið þétt pakkað og skyggni gott. Léttskýjað var, frost í lofti og aðeins hægur vindur sem gerði aðstæður afar þægilegar fyrir skíðafólk.

Að sögn Birgir Egilsson, forstöðumanns Skíðasvæðisins í Skarðsdal, var aðsóknin með allra mesta móti.

Allt að 1400 gestir í Skarðsdal um helgina - Birgir: „Veðrið veitti frönskunum harða samkeppni“

Skíðafólk á öllum aldri fyllti þjónustuhúsið í Skarðsdal eftir annasaman dag í brekkunum.
Mynd: Facebook / Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg

„Já, aðsóknin var rosaleg og hér voru á bilinu 1200 til 1400 manns, myndi ég segja. Það var nánast ormaröð við hverja lyftu. Veðrið var dásamlegt og bros á allra vörum. Auk þess seldi skíðafélagið franskar sem veittu fallega veðrinu harða samkeppni,“

Sagði Birgir, betur þekktur sem stemmingskallinn, í samtali við Trolla.is.

Skíðasvæðið á Ólafsfirði

Sólríkur dagur á skíðasvæðinu í Ólafsfirði þar sem Skíðadagar Skíðafélags Ólafsfjarðar drógu fjölda gesta í brekkurnar.
Mynd: Jón Valgeir

Um helgina fóru jafnframt fram Skíðadagar Skíðafélags Ólafsfjarðar þar sem boðið var upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá fyrir skíðafólk á öllum aldri. Vel var sótt í viðburðina og ljóst að áhugi á skíðaiðkun á svæðinu er áfram mikill þegar aðstæður eru eins og best verður á kosið.