Anna Hermína, sem búsett er á Siglufirði safnar jólagjöfum fyrir þá sem minna mega sín sextánda árið í röð.
Anna Hermína byrjaði að gefa jólagjafir árið 2005 og hefur það aukist jafnt og þétt á þessum 16 árum.
Í fyrstu voru það 20 – 30 gjafir sem hún gaf sjálf, en svo fóru fleiri og fleiri að taka þátt með Önnu og í fyrra söfnuðust 600 gjafir frá fólki í Fjallabyggð, 250 fóru á Norðurland og 350 til Reykjavíkur.
Anna Hermína stendur fyrir jólapakkasöfnun
Anna Hermína vill hvetja alla til að kaupa eina aukagjöf fyrir þessi jól og gleðja börnin sem virkilega þurfa á því að halda og koma þeim til hennar.
Þeir sem vilja láta gott af sér leiða geta komið pökkum til Önnu Hermínu eða hringt í hana í síma 848 9048.
Einnig er hægt að leggja inn á reikning, 0348-13-8865 300572 3409 og verslar Anna Hermína fyrir upphæðina og sendir hún viðkomandi mynd af greiðslukvittuninni.
Anna Hermína var kosin maður ársins í Fjallabyggð af lesendum Trölla.is árið 2020, það er ljóst að óeigingjarnt starf hennar vekur athygli víða og eru henni margir þakklátir.
Maður ársins í Fjallabyggð