Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum í október 2021 samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var 1.118 og var upphæð viðskiptanna um 59,7 milljarðar króna þegar miðað er við útgáfudagsetningu. Þegar október 2021 er borinn saman við september 2021 fækkaði kaupsamningum um 12,7% og velta minnkaði um 12,8%. Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði samningum um 10,7% á milli mánaða og velta minnkaði um 14,1%.

AllsSérbýliFjölbýliAtvinnueignirSumarhúsAnnað
Heildarvelta í síðasta mánuði59.68319.06134.8034.1781.060584
Þar af höfuðborgarsvæðið40.6179.91527.4572.97217896
AllsSérbýliFjölbýliAtvinnueignirSumarhúsAnnað
Kaupsamningar í síðasta mánuði1.118286687943318
Þar af höfuðborgarsvæðið6481004776065

Hægt er að sjá veltu á fasteignamarkaði frá júní 2006 til dagsins í dag í skjali sem Þjóðskrá gefur út þar sem gögnunum er skipt í flokka eftir landshlutum og tegund húsnæðis. Fréttin er birt með þeim fyrirvara að ekki er búið að skanna og skrá alla samninga sem heyra til síðasta mánaðar, tölurnar verða því uppfærðar. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar í fasteignagátt Þjóðskrár