Hið árlega jólakvöld verður haldið á morgun, föstudagskvöldið 7. desember í miðbæ Ólafsfjarðar.

Hefst það kl.19:30 og stendur fram eftir kvöldi. Þá verður miðbærinn lokaður fyrir umferð ökutækja og hluti Aðalgötunnar gerður að göngugötu.

Ýmiskonar varningur verður til sölu í jólahúsum, Pálshúsi, Gallerý Uglu og Smíðakompu Kristínar. Einnig verða Kaffi Klara og Kjörbúðin opin.

Jólasveinasafn Egils Sigvaldasonar verður til sýnis í Pálshúsi.

Tónlistarfók kemur fram á svæðinu og húsum í kring.

Lifandi tónlist kl.22 í Tjarnarborg!

Fólk er hvatt til þess að mæta á svæðið og njóta kvöldsins í Jólabænum Ólafsfirði!

 

Forsíðumynd: Guðný Ágústsdóttir