Eftir óveðrið 2019 tók Álfhildur Leifsdóttir í stjórn SSNV saman af heimasíðu RARIK fjölda starfa eftir landsvæðum hjá fyrirtækinu sem þjónustar einungis landsbyggðina. Vekur hún athygli á rauðu letri í starfsmannalistanum hér að neðan þar sem titlar hafa endinguna “stjóri” og hvar þeir starfsmenn eru staðsettir, aðallega í Reykjavík hvar RARIK þjónustar ekki rafmagn.

RARIK auglýsir nú starf verkefnastjóra þar sem starfsstöð starfsmanns skal vera í Reykjavík. Af því tilefni sendi stjórn Samband sveitafélaga á Norðurlandi vestra, SSNV áskorun á RARIK.


“Staðsetning starfa hjá RARIK. Nýverið auglýsti RARIK laust til umsóknar starf verkefnisstjóra stærri framkvæmda hjá félaginu. Í auglýsingunni er tiltekið að starfsstöð viðkomandi starfsmanns verði í Reykjavík. Vert er að vekja athygli á að starfsemi RARIK er öll á landsbyggðinni ef frá eru taldar höfuðstöðvar.

Allar þær framkvæmdir sem nýr verkefnisstjóri mun hafa umsjón með verða því á landsbyggðinni. Þess vegna vekur það furðu stjórnar SSNV að föst starfsstöð í Reykjavík sé tiltekin í auglýsingunni en starfið ekki auglýst án staðsetningar.

Þegar eru til staðar fjölmargar starfsstöðvar félagsins um land allt, m.a. á Blönduósi og Sauðárkróki auk ný aflagðrar starfsstöðvar á Hvammstanga.

Stjórn SSNV skorar á stjórn RARIK að endurskoða fasta staðsetningu starfa í Reykjavík og auglýsa þess í stað störf án staðsetningar. Þannig stuðlar félagið að áframhaldandi uppbyggingu starfsstöðva sinna á landsbyggðinni, þar sem viðskiptavinir þess eru staðsettir”.

Stjórn SSNV veitti jafnframt nýverið umsögn um þingsályktunartillögu um flutning höfuðstöðva RARIK á landsbyggðina. Í umsögninni er tekið undir efni þingsályktunartillögunnar og minnt á að í skýrslu Norðvesturnefndarinnar frá árinu 2014 um eflingu byggðaþróunar, fjölgun atvinnutækifæra og auknar fjárfestingar á Norðurlandi vestra var ein tillagnanna flutningur höfuðstöðva RARIK á Sauðárkrók auk eflingar starfsstöðva á Blönduósi og Hvammstanga. Umræða um staðsetningu starfa hjá RARIK er því langt frá því að vera ný af nálinni.

Mynd/Rarik