Verið er að gera við tengingu í Húnabraut og þess vegna þarf að loka fyrir heita vatnið frá kl. 9:00 í dag, þriðjudaginn 26. maí.

Gert er ráð fyrir að viðgerð verði lokið fyrir hádegi.

Þjónusturof hitaveitu – ábending til húsráðenda

  1. Hafa þarf í huga að loft getur komist á kerfið þegar vatni er hleypt á að nýju með viðeigandi óhljóðum. 
  2. Húsráðendum er bent á að við viðgerðir kunna óhreinindi að fara af stað í lögnum þegar vatni er hleypt á. Því er nauðsynlegt að skola kerfið vel út með því að láta vatn renna um stund. Best er að útskolun fari fram sem næst inntaksstað sé þess kostur.
  3. Sé húsráðandi í vafa um hvernig bregðast á við skal undantekningalaust haft samband við pípulagningameistara.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þessu kann að fylgja.

 Veitustjóri.