Vegagerðin hefur gefið út nýtt hálendiskort sem segir til um ástand fjallvega.

Hálendiskort nr. 3 má nálgast hér: https://www.vegagerdin.is/vgdata/halendi/halendi.pdf

Helstu breytingar frá síðasta korti eru:

Búið er að opna Lakaveg (F206) upp að Fagrafossi

Búið er að opna yfir Kjöl (35) (Einungis fært fjallabílum norðan Kerlingarfjalla.)

Búið er að opna Fjallabaksleið nyrðri (208) frá Sigöldu og að Landmannalaugum.

Búið er að opna Fjallabaksleið nyrðri (F208) upp að Hólaskjóli að austan.

Búið er að opna Arnarvatnsheiði (F578) milli Surtshellis og Úlfsvatns

Einnig er búið er að opna veginn upp á Bolafjall.

Mynd/Vegagerðin