Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hjá sýslumönnum vegna forsetakjörs þann 1. júní 2024 hófst 3. maí 2024.

Upplýsingar um staðsetningu og opnunartíma verður að finna undir hverju embætti fyrir sig hér að neðan.

Athugið að upplýsingar geta breyst án fyrirvara.

Kjósendur skulu framvísa gildum skilríkjum við kosninguna.

Kjósandi getur sótt um að greiða atkvæði í heimahúsi ef hann getur ekki sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar nema hann eigi kost á að greiða atkvæði á stofnun. Þeir sem fyrirsjáanlega þurfa að óska eftir að fá að greiða atkvæði í heimahúsi eru hvattir til að skila beiðni inn tímanlega.

Nálgast má ýmsar almennar upplýsingar um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar á vef landskjörstjórnar.