Atvinnuleysi í marsmánuði í Húnaþingi vestra hefur aukist um 3 á milli ára. Á atvinnuleysisskrá í mars 2019 voru 14 einstaklingar án atvinnu en í febrúar voru 15 án atvinnu. Atvinnuleysi er mest hjá fólki á aldrinum 20 – 30 ára eða 7 manns. 10 konur eru án atvinnu en 4 karlar.

Í mars 2018 voru 11 án atvinnu. Ef rýnt er frekar í atvinnuleysistölur Hagstofunnar fyrir Húnaþing vestra má sjá hvaða menntun atvinnulausir hafa og í hvaða starfsgreinum þeir eru.