Laust er starf slökkviliðsstjóra Brunavarna Húnaþings vestra. Meðal verkefna slökkviliðsstjóra eru daglegur rekstur slökkviliðs, fræðsla og þjálfun slökkviliðsmanna, dagleg umhirða og minniháttar viðhald búnaðar, ásamt eldvarnareftirliti á starfsvæði Brunavarna Húnaþings vestra og öðru því sem til fellur innan starfssviðs samkvæmt lögum og reglugerðum sem við eiga.
Slökkviliðsstjóri gengur bakvaktir á móti varaslökkviliðsstjóra og varðstjórum eftir nánara samkomulagi. Slökkviliðsstjóri er æðsti yfirmaður slökkviliðsins og heyrir beint undir sveitarstjóra. Slökkvistöð Brunavarna Húnaþings vestra er staðsett á Hvammstanga.
Starfshlutfall er 50% auk bakvakta.
Umsækjendur skulu uppfylla ákvæði 2.mgr. 15. gr. laga nr. 75/2000 um brunavarnir. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu í stjórnun og hæfni í mannlegum samskiptum og aukin ökuréttindi í fl. C.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi LSS og launanefndar sveitarfélaga.
Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir sveitarstjóri í síma 455 2400.
Umsóknarfrestur er til og með 20. janúar 2021, og skal senda umsóknir á Húnaþing vestra, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga, merkt: “Slökkviliðsstjóri – Brunavarnir Húnaþings vestra”, eða á netfangið: rjona@hunathing.is