Grunnskóli Húnaþings vestra leitar að myndum frá undirbúningsvinnu og sýningum í skólanum á Hvammstanga í tilefni afmælishátíðar Hvammstangahrepps árið 1988.

Þeir sem eiga myndir eru vinsamlegst beðnir um að senda þær á netfang skólans eða koma með þær í skólann þar sem hægt er að taka afrit af þeim. „Við leitum bara að myndum sem tengjast skólanum, gerð líkana, sýningum o.þ.h. en ekki frá öðrum viðburðum á Hvammstanga,“ segir á vef skólans.

Frekari upplýsingar um málið veitir skólastjórinn, Sigurður Þór Ágústsson, siggi@hunathing.is.

Netfang skólans er grunnskoli@hunathing.is.