Tvær aurskriður hafa fallið sunnan við Stóra bola á Siglufirði í nótt. Trölli.is hafði samband við Veðurstofu Íslands og fékk þær upplýsingar að upp­söfnuð úr­koma á Siglufirði síðasta sólarhring hafi verið 140 milli­metr­ar.

Eins og fram kom í frétt á Trölli.is um hádegi hefur flætt inn í hús á Eyrinni á Siglufirði,  eins inn í húsnæði Menntaskólans á Tröllaskaga, í kjallara sundlaugarinnar í Ólafsfirði og allt á floti við tjörnina þar. Einnig eru miklir vatnavextir í Héðinsfirði.

Kunnugir segja að kolmórauðar árnar, Fjarðará og Skútuá, beri það með sér í dag að aurskriður hafa fallið frammi í dölunum, Skútudal og Hólsdal.

Veðurstofa Íslands hefur gefið út viðvörun vegna úr­kom­unn­ar á Trölla­skaga. Dregur smám saman úr vindi og úrkomu þegar líður á daginn.

 

.

 

.