Stefnt er á að halda Bæjarhátíðina Hofsós heim helgina 25.- 27. júní.

Hátíðin verður haldin í takt við gildandi sóttvarnir og fjöldatakmarkanir á þeim tíma.

Ljóst er að dagskráin verður töluvert breytt frá fyrri árum en áhersla verður lögð á að búa til afþreyingu og umhverfi sem fjölskyldur og vinahópar geta notið í sameiningu.

Sjá frekari upplýsingar á facebooksíðu hátíðarinnar.