Heilbrigðiseftirlitið hefur fengið ábendingu um að endurskoða beri það verklag sem tíðkast víða á vegasjoppum að viðskiptavinirnir sjálfir hafi hendur á sömu sósubrúsunum, á pylsustöndum.
Í ljósi umræðu um smithættu vegna COVID 19 veirunnar eru neytendur varari um sig, en áður. Sett er spurningamerki við það verklag að ferðalangar vítt og breitt úr heiminum séu að kreista sömu brúsana og matast síðan í kjölfarið.
Heilbrigðiseftirlitið tekur undir þessi sjónarmið og beinir þeim óskum til þeirra rekstraraðila þar sem umrætt verklag er viðhaft, að það verði endurskoðað.
Mynd: pixabay