Beyglur með beikon-, eggja- og cheddarhræru (fyllingin dugar á 6 beygluhelminga)
- 6 beikonsneiðar, steiktar og hakkaðar
- 6 harðsoðin egg, skurnin tekin af og eggin hökkuð
- 1 bolli rifinn cheddar ostur
- 1/2 bolli majónes
- 1/2 msk Dijon sinnep
- 1/4 tsk hvítlauksduft
- 1/2 tsk Worcestershire sósa
- 3 beyglur
Hrærið beikoni, eggjum, cheddar osti, majónesi, dijon sinnepi, hvítlauksdufti og Worcestershire sósu saman.
Kljúfið beyglurnar og hitið þær í 200° heitum ofni í 3-4 mínútur. Setjið þá fyllinguna yfir beyglurnar og hitið í 4 mínútur til viðbótar.
Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit