Björgunarsveitin á Dalvík fékk útkall í vikunni þar sem kvíga hafði komist niður í gil í Svarfaðardal og komst ekki upp af sjálfsdáðum.

Góð ráð voru dýr þar sem aðstæður voru erfiðar, en að lokum náðist kvígan upp með aðstoð Björgunarsveitarinnar á Dalvík eins og myndbandið ber með sér.

Sjá myndband: Hér

Forsíðumynd/skjáskot úr myndbandi