Þátturinn Tíu Dropar verður á dagskrá FM Trölla í dag kl 13.00 – 15.00

Það eru „Tröllahjónin“ Kristín Sigurjóns og Gunnar Smári sem stjórna þættinum.

Í þættinum í dag verður tilkynnt hverjir hljóta viðurkenningarnar maður ársins á Trölla.

Tilnefndir verða tveir aðilar, annars vegar maður ársins í Ólafsfirði og hins vegar maður ársins á Siglufirði.

Einnig getur heppinn hlustandi nælt sér í veglegt gjafabréf frá Björgunarsveitinni Strákum á Siglufirði.

Gjafabréfið gildir fyrir einn kökukassa með 6 kökum.

 

Flugeldasala Stráka verður opin í dag frá kl. 13-21 og á morgun, gamlársdag, kl. 10-15.

Að kvöldi gamlársdags verður svo flugeldasýning á Vesturtanga kl. 21.

Hlustendum er velkomið að hringja inn í þáttinn til að spjalla um nánast hvað sem er. Síminn er 5800.580

Fylgist með þættinum Tíu Dropar á FM Trölla í dag kl. 13.
FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga, 102.5 á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim á vefnum trolli.is

Hægt er að hlusta á þáttinn með því að smella á hlusta efst á síðunni eða hér: Hlusta