Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Sóló sumarbjór frá Íslenskri hollustu vegna þess að bjórdósir geta bólgnað og sprungið.
Fyrirtækið Og natura/Íslensk hollusta hefur innkallað bjórinn í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnaness (HEF).
Innköllunin á einungis við um eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Og natura
- Vöruheiti: Sóló Sumarbjór
- Best fyrir dagsetning/Lotunúmer: 22.okt 2022 / L2205
- Framleiðandi: Íslensk hollusta.
- Dreifing: ÁTVR
Neytendur sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og skila henni í næstu ÁTVR verslun.
Forsíðumynd/pixabay