Eldvarnardagur var í leikskólum Fjallabyggðar, Leikhólum og Leikskálum, í gær. Börn á efstu deildum leikskólana hafa í vetur aðstoðað slökkvilið við að tryggja að brunavarnir leikskólanna væru í lagi. Jafnframt var þeim kynnt og kennt mikilvægi brunavarna meðal annars heima fyrir.
Börnin voru útskrifuð sem “Aðstoðarmenn slökkviliðs” og fengu viðurkenningarskjal þess efnis.
Þá var haldin rýmingaræfing á Leikskálum sem gekk vel. Þar æfir starfsfólk verklag ef rýma þarf bygginguna í skyndi. Samskonar rýmingaræfing verður á Leikhólum í júní.
Mynd/Slökkvilið Fjallabyggðar