Í gær kom saman hópur karla sem ólust upp í brekkunni á Siglufirði hér á árum áður.

Hittingurinn fór fram heima hjá Gunnari Trausta sem ólst upp að Suðurgötu 26 á Siglufirði.

Höfðu sumir þátttakendur ekki hist í áratugi. Tilefnið var einfalt, að rifja upp gömul kynni og njóta samveru.

Að sögn Leós Ólasonar var þetta skemmtileg samkoma og mikið skeggrætt, en kannski ekki allt eftir hafandi eða þannig.

Á mynd sem tekin var við þetta tækifæri eru eftirfarandi einstaklingar, talið frá vinstri:

  • Ragnar Páll Einarsson, sem ólst upp á Hótel Siglufjörður, sem stóð í túninu fyrir neðan kirkjuna.
  • Kjartan Stefánsson (Stefáns Friðbjarnar), sem bjó um tíma á Hverfisgötunni.
  • Þorsteinn Haraldsson (Steini Kára), sem átti heima að Hávegi 12.
  • Jóhann Skarphéðinsson (Lillu og Skarpa), sem bjó að Hólum við Lindargötu.
  • Gunnar Trausti (Gunni Binnu), gestgjafi, Suðurgötu 26.
  • Skafti Jónsson (Jóns Skafta).
  • Þórhallur Jóhannesson (Brói), sem átti heima að Hávegi 12.
  • Þórður Axel Ragnarsson (Erlu og Ragga Sveins), Hverfisgötu 8.
  • Leó R. Ólason, sem ritaði þennan texta, frá Hverfisgötu 11.
  • Guðbjörn Haraldsson, sem ólst að miklu leyti upp að Suðurgötu 28 í húsi sem kallað var Þönglaskáli.
  • Einar Pálsson (Einar Ástu), sem bjó fram að unglingsaldri að Hávegi 3.
Með guttahverfið í baksýn. Myndvinnsla/Steingrímur Kristinsson

Sjá heimildasíðu Steingríms Kristinssonar: HÉR

Mynd/Kristín Þ. H. Helgadóttir