Breyting á greiðslufyrirkomulagi styrkja úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða vegna áhrifa COVID-19
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur ákveðið að veita tímabundna breytingu á greiðslufyrirkomulagi styrkja úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða.
Breytingin sem gildir um úthlutanir sjóðsins árin 2020 og 2021 hefur það í för með sér að hægt er að greiða út styrki með fimm jöfnum greiðslum eftir framgangi verkefna gegn framlagningu framvinduskýrslu og reikninga.
Með þessu er brugðist við lausafjárvanda styrkþega í kjölfar heimsfaraldurs kórónaveiru og komið í veg fyrir að framkvæmdir stöðvist vegna skorts á fjármagni.
Mynd: Golli
Skoða á vef Stjórnarráðsins