Slökkviliðsstjóri í Fjallabyggð gagnrýnir Símann harðlega eftir að bilun kom upp í dreifikerfi fyrirtækisins á Siglufirði, sunnudaginn 25. júní, og gerir alvarlegar athugasemdir við viðbrögð fyrirtækisins. Vart varð við bilun í kerfinu um klukkan 13:20 sem varð til þess að farsímaþjónusta fyrirtækisins datt út með öllu.

Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að fá upplýsingar þá voru þær sem fengust af skornum skammti. Eina leiðin til að ná sambandi fyrir fyrirtækið var í gegnum netspjall á siminn.is og sá þjónustufulltrúi sem þar varð fyrir svörum hafði litlar upplýsingar. Þá var óskað eftir því að Síminn sendi frá sér tilkynningu vegna málsins en ekki var orðið við því. Allavega ekki opinberlega. Engar tilkynningar var að finna á heimasíðu Símans, Facebook-síðu fyrirtækisins eða á Twitter. Hafi fyrirtækið sent eitthvað frá sér voru þær upplýsingar, í það minnsta, ekki aðgengilegar fyrir alla. Viðbragðsaðilar, slökkvilið, sjúkraflutningar, björgunarsveitir og lögregla, stóla á að farsímakerfi allra þjónustuaðila virki og þá eru mörg öryggiskerfi og neyðarhnappar tengdir í gegnum farsímanetið. Því er mikilvægt, verði brestur í þjónustu, að sendar séu út upplýsingar um bilun og áætlaðan viðgerðartíma í það minnsta. Þá á einnig að gera viðeigandi ráðstafanir við að koma varakerfi eða varaleið upp svo þjónustan liggi ekki niðri klukkustundum saman.

Viðskiptavinir Símans sem staddur voru á Siglufirði á sunnudag gátu ekki hringt eða móttekið símtöl og ekki var hægt að senda eða móttaka SMS skilaboð. Þess ber þó að geta að hægt var að hringja í neyðarnúmerið 1-1-2 því sé það gert þegar brestur verður í þjónustu að þá grípur næsti farsímasendir símtalið, sama frá hvaða fyrirtæki það er. Ef upp hefði komið atvik hefðu hins vegar skilaboð frá 1-1-2 ekki skilað sér í síma slökkviliðsmanna eða annarra viðbragðsaðila sem eru í viðskiptum við Símann.

Það þykir undarlegt að á árinu 2023 skuli ekki heyrast orð frá Símanum um þá bilun sem var í gangi þrátt fyrir að eftir því hafi verið leitað. Bilunin varði í 7 klukkustundir en kerfið var ekki komið inn fyrr en klukkan 20:30. Það er ekki í boði að það verði þjónustufall á svo mikilvægri þjónustu í margar klukkustundir. Fyrir utan þann íbúafjölda sem í bænum býr er mikill fjöldi ferðamanna á svæðinu sem stóla á þjónustuna. Slökkviliðsstjóri reyndi hvað hann gat til að ná sambandi við tæknideild eða upplýsingafulltrúa fyrirtækisins en án árangurs. Upplýsingamiðlun er gríðarlega mikilvæg í tilvikum sem þessum og til að mynda hafa raforkufyrirtækin ákveðna ferla í upplýsingamiðlun þegar aðstæður sem þessar koma upp. Síminn og önnur farsímafyrirtæki mættu taka sér þá ferla til fyrirmyndar.

Slökkviliðsstjóri gerir þá kröfu til Símans að útskýra hvað fór úrskeiðis og jafnframt þá kröfu að komi til skerðingar á þjónustu að viðbragðsaðilar og viðskiptavinir séu upplýstir um það og framgang viðgerðar.