Á 268. fundi bæjarstjórnar Fjallabyggðar voru lagðar fram tillögur að breytingum á trúnaðarstöðum samkvæmt samþykktum sveitarfélagsins.
Samkvæmt tillögunum tekur María Sölvadóttir sæti Maríu Leifsdóttur sem fulltrúi leik- og grunnskóla í stýrihópi Heilsueflandi samfélags. Þá tekur Harpa Hlín Jónsdóttir sæti Dagnýjar Sifjar Stefánsdóttur sem aðalfulltrúi heilsugæslunnar í stýrihópnum, en Elfa Sif Kristjánsdóttir tekur sæti sem varafulltrúi.
Tillögurnar um breytingar á trúnaðarstöðum voru samþykktar með sjö atkvæðum.




