Hermann Ingi Gunnarsson og Ingibjörg Leifsdóttir eru bændur á Klauf í Eyjafjarðarsveit þar sem þau reka kúabú og rækta bygg. Þau eru einnig með ræktun á Borgarhóli og á Litla Hamri. Hermann er lærður búfræðingur og hefur góða þekkingu á kornrækt.
Kornþresking er hafin og rækta þau bygg á um 20 hekturum, einnig hveiti, rúg og bjórbygg.
Bjórbyggið er tilraun sem unnin er í samvinnu við bruggsmiðjuna Segul 67 á Siglufirði. Ætlunin er að athuga hvort hægt er að brugga úr því ef uppskeran gengur vel.
Upphaf þessarar samvinnu var þegar þeir Marteinn Brynjólfur Haraldsson, einn af eigendum Seguls 67 á Siglufirði og Hermann kynntust fyrir 12 árum við hjálparstörf og spænskunám í Guatemala og varð vel til vina. Gerir Marteinn sér vonir um að ef allt gengur eftir geti Segull 67 brugghús boðið upp á íslenskan úrvals bjór bruggaðan úr íslensku byggi og með hráefnum úr héraði.
Frétt: Kristín Sigurjónsdóttir
Myndir: Segull 67/pixabay