Hraðallinn Hugsum hærra farinn af stað
12.01.2021
Viðskiptahraðallinn Hugsum hærra hófst mánudaginn 11. janúar undir stjórn Einars Sigvaldasonar, ráðgjafa hjá Senza.
Hraðallinn fer fram á netinu í gegnum forritið Zoom þar sem frumkvöðlar af Norðurlandi vestra og Vestfjörðum koma saman. Alls taka tíu fjölbreytt fyrirtæki þátt, þar af fimm af Norðurlandi vestra:
- Smith&Jónsson
- Skíðasvæði Tindastóls
- Brúnastaðir
- Extis hugbúnaðarstofa
- Veraldarvinir
Fyrirtækin sem taka þátt á Vestfjörðum eru:
- Bambahús
- Þörungaklaustur
- Kyrrðarkraftur
- Sýslið
- Kalksalt
Hraðallinn er unninn í samstarfi við Senza og Vestfjarðarstofu og stendur yfir vikuna 11-15. janúar. Markmið hraðalsins er að aðstoða fyrirtæki að vinna fjárfestakynningar, skrifa styrkumsóknir, móta stefnu og ramma inn viðskiptaáætlun. Fyrirtækin halda svo áfram í reglulegri eftirfylgni með atvinnuráðgjafa samtakanna næstu mánuðina.