Ráðgjafar SSNE veita upplýsingar um styrki og styrkjamöguleika sem standa einstaklingum, fyrirtækjum og rannsóknaraðilum til boða. Á næstu mánuðum eru eftirfarandi sjóðir auglýstir:

  • Myndlistarsjóður 23. ágúst kl. 16:00
    • Undirbúningsstyrki – Undirbúningsstyrkir eru veittir til undirbúnings og þróunar viðamikilla verkefna sem síðar geta sótt um styrk til framkvæmdar.
    • Sýningarverkefni – Styrkir til sýningarverkefna. Með verkefni er átt við viðburð sem fer fram á afmörkuðu tímabili með skilgreint upphaf og endi.
    • Útgáfustyrki, rannsóknarstyrki og aðra styrki – Útgáfustyrkir, rannsóknarstyrki og aðrir styrkir eru veittir til rannsókna á verkum íslenskra listamanna og til útgáfu rita um íslenska listasögu og verk myndlistarmanna auk annarra opinna verkefna sem ekki falla undir aðra liði.
  • Styrkveitingar ANR. 31. ágúst.
    • Til hvers? Styrkir til verkefna og viðburða á málefnasviðum ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
  • Hljóðritasjóður: 15. september kl. 15:00
    • Fyrir hverja: Tónlistarmenn, jafnt einstaklinga sem hljómsveitir, útgáfufyrirtæki og aðra er koma að hljóðritun tónlistar.
    • Til hvers? Hljóðritasjóður veitir styrki til hljóðritunar nýrrar, frumsamdrar tónlistar sem stuðla á að nýsköpun. Veittir eru styrkir í almenn verkefni og þróunarverkefni.
  • Tækniþróunarsjóður: Vöxtur, Sprettur. 15. september kl. 15:00.
    • Fyrir hverja: Lítil og meðalstór fyrirtæki
    • Til hvers? Vöxtur er ætlaður til að styrkja þróunarverkefni sem eru komin af frumstigi hugmyndar. Sprettur er öndvegisstyrkur innan Vaxtar.
  • Tækniþróunarsjóður: Sproti. 15. september kl. 15:00
    • Fyrir hverja? Ung nýsköpunarfyrirtæki og frumkvöðla
    • Til hvers? Til að styðja við verkefni á byrjunarstigi.
  • Tækniþróunarsjóður: Markaðsstyrkur. 15. september kl. 15:00
    • Fyrir hverja? Markaðsstyrkur er eingöngu fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem verja að lágmarki 10% af veltunni til rannsókna- eða þróunarstarfs samkvæmt síðasta reikningsári.
    • Til hvers? Hægt er að sækja um styrk vegna sérstaks markaðsátaks en einnig uppbyggingu innviða fyrirtækisins sem tengjast sókn á markaði.
  • Rannís – Skattfrádráttur rannsókna- og þróunarverkefna
    • Fyrir hverja? Fyrirtæki sem eru eigendur rannsókna- eða þróunarverkefna. Háskólar og stofnanir teljast ekki fyrirtæki í skilningi þessara laga.
    • Til hvers? Fyrirtæki sem hafa fengið staðfestingu Rannís á rannsókna- eða þróunarverkefni eiga rétt á frádrætti á tekjuskatti skv. lögum nr. 152/2009. Sé álagður tekjuskattur lægri en ákvarðaður frádráttur, eða lögaðila ekki ákvarðaður tekjuskattur vegna skattalegs taps, þá er frádrátturinn greiddur út
  • Listamannalaun. 4. október kl. 15:00
    • Fyrir hverja? Sjálfstætt starfandi hönnuði, myndlistarmenn, rithöfunda, sviðslistafólk, tónlistarflytjendur og tónskáld.
    • Til hvers? Að efla listsköpun í landinu. Alþingi veitir árlega fé af fjárlögum til þess að launa listamenn í samræmi við lög.
  • Sviðslistasjóður 4. október kl. 15:00
    • Fyrir hverja? Atvinnusviðslistahópa
    • Til hvers? Veittir eru styrkir til einstakra verkefna.
  • Framkvæmdasjóður ferðamannastaða – byrjun október
    • Fyrir hverja? Framkvæmdasjóður ferðamannastaða fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.
    • Til hvers? Annars vegar vegna (Nýrrar) þjónustu/aðstöðu á ferðamannastað / ferðamannaleið. Hins vegar vegna úrbóta vegna náttúruverndar og/eða öryggis á ferðamannastað eða ferðamannaleið.
  • Uppbyggingasjóður Norðurlands eystra – auglýst í október.
    • Fyrir hverja? Lögráða einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir eða sveitarfélög á Norðurlandi eystra.
    • Til hvers? Tilgangur Uppbyggingarsjóðs er að styrkja annars vegar menningar- og hinsvegar atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni á Norðurlandi eystra.
  • Menningar- og viðurkenningarsjóður KEA – auglýst haust 2021
    • Fyrir hverja? félög, verkefni og einstaklinga á félagssvæði KEA. 
  • Rannís – Sóknarstyrkir 20. október kl. 15:00
    • Stofnanir, fyrirtæki, vísindafólk og fræðimenn sem sækja um í alþjóðlega rannsóknasjóði. Forgangur er veittur þeim sem sækja um í Horizon Europe rannsókna- og nýsköpunaráætlun ESB, en mögulegt er að styrkja annað samstarf samkvæmt ákvörðun stjórnar sjóðsins.
    • Til hvers? Til undirbúnings umsókna í alþjóðlega rannsóknasjóði, einkum Horizon 2020.
  • Tónlistasjóður 1. nóvember kl. 15:00
    • Fyrir hverja? tónlistarfólk, hljómsveitir, kóra og aðra er koma að tónlistarflutningi.
    • Til hvers? Sjóðurinn skiptist í tvær deildir, tónlistardeild og markaðs- og kynningardeild. Tónlistardeild veitir styrki til almennrar tónlistarstarfsemi, en markaðs- og kynningardeild veitir styrki til kynningar og markaðssetningar á tónlist og tónlistarfólki hér á landi og erlendis.

SSNE vekur líka athygli á því að mörg fyrirtæki veita samfélagsstyrki og hvetjum við fólk til að kynna sér þá. 

Athygli skal vakin á því að listinn er ekki tæmandi skrá yfir alla styrki sem eru í boði. Ábendingar um fleiri sjóði skal senda á ssne@ssne.is