Tónlistarkonan Brynja sendir frá sér fyrsta lag af væntanlegri plötu.

Lagið heitir My Oh My.

Hennar fyrsta plata kemur út 20. október og kallast Repeat. 

Lagið er spilað í rólegu deildinni á FM Trölla

Brynja hefur getið sér gott orð í tónlistinni síðustu misseri og lag hennar Easier naut vinsælda í íslensku útvarpi í fyrra. Í ágúst sendi hún frá sér nýtt lagið Mildly Insane í samstarfi við hollenska listamanninn Yaëll Campbell og samlanda sinn, pródúserinn Baldur Hjörleifsson.

Lagið á Spotify