Oskar Brown er kominn úr fríi og býður hlustendum enn á ný upp á Egg, Beikon og Bakaðar Baunir á FM Trölla á föstudögum frá klukkan 8 til 10. Þátturinn, sem er sendur út í beinni útsendingu frá Studio 7 á Englandi, inniheldur skemmtilega tónlistarblöndu, fréttir af forsíðum dagblaðanna, og skringilegar sögur af fólki utan úr heimi. Oskar kíkir einnig á helgarveðrið og býður öllum að taka þátt í hressilegri morgunleikfimi.

Endilega stillið á FM Trölla á föstudögum frá klukkan 8 til 10, þið sjáið ekki eftir því.

FM Trölli næst á FM 103.7 í Eyjafirði, á Tröllaskaga, í Skagafirði, á Hvammstanga og nágrenni, og auðvitað um allan heim hér á vefnum trolli.is.

Á vefsíðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á síðunni eða hér: Hlusta

Minnum sjómenn á hafi úti og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is