ChitoCare Beauty Open kvennamótið sem haldið var af Golfklúbbi Siglufjarðar fór fram á golfvelli Sigló Golf á laugardaginn, 7. ágúst í fallegu sumarveðri.
Ræst var út af öllum teigum og leiknar voru 18 holur.
Keppt var í tveimur flokkum í punktakeppni: Forgjöf 0 til 28.0, forgjöf 28,1 til 54.
Allir fengu veglega teiggjöf frá ChitoCare við mætingu og verðlaun voru fyrir fyrstu 3 sætin og nándarverðlaun á par 3 brautum.
Úrslit:
Flokkur Forgjöf 0 til 28.0
- Ólína Þ. Guðjónsdóttir frá GKS með 37 punkta
- Dagný Finnsdóttir frá GFB með 32 punkta
- Halldóra Andrésdóttir GSS með með 32 punkta
Flokkur Forgjöf 28,1 til 54
- Jóhanna Þorleifsdóttir frá GKS með 40 punkta
- Ríkey Sigurbjörnsdóttir frá GKS með 39 punkta
- Anna Hulda Júlíusdóttir frá GKS með 39 punkta