Háskólanemar frá Gustavus Adolphus College í Minesota í Bandaríkjunum heimsóttu Menntaskólann á Tröllaskaga á þriðjudag.

Þetta var tuttugu manna hópur á aldrinum 18 – 21 árs ásamt kennurum sínum Kjerstin Moody og Jeff La Frenierre.

Nemendur GAC taka í janúarmánuði námskeið sem er ferðalag.

Gjarnan er farið á framandi slóðir og námið hugsað til undirbúnings nemenda fyrir starfsferil þeirra (career course). Áhersla er á samþættingu greina á borð við bókmenntir, hagfræði, hjúkrun, landfræði og lýðheilsu.

Hópurinn verður þrjár vikur á Íslandi og kynnir sér sérstaklega atvinnulíf, mannlíf og menningu í bæjum á Tröllaskaga.

Lára Stefánsdóttir skólameistari og Inga Eiríksdóttir tóku á móti hópnum og sögðu frá skólastarfi MTR. Nemendurnir voru áhugasamir og spurðu margs. Sumir höfðu verið í grunnskóla þar sem kennslufræðin var svipuð því sem fylgt er í MTR.

Heimild: mtr.is
Mynd: GK