Í gær, mánudaginn 24. janúar var Covid-19 staðan í Dalvíkurbyggð eftirfarandi:
Í sóttkví – 43 einstaklingar, 33 í póstnúmeri 620 og 10 í 621.
Í einangrun – 20 einstaklingur, 15 í póstnúmeri 620 og 5 í 621.
Aukinn fjöldi einstaklinga í sóttkví og einangrun skýrist af smitum sem komu upp í Dalvíkurskóla í vikunni.
Dalvíkurbyggð mun halda íbúum eftir fremsta megni vel upplýstum.
Hér fyrir neðan má finna afar greinargóðar skýringar af covid.is varðandi smitgát, sóttkví og einangrun.
Ef einhverjar spurningar vakna er öllum velkomið að hafa samband við undirritaða á dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is eða í síma 460-4900.