Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins. Ferðakostnaður innanlands er reiknaður út frá verðkönnun þar sem kannað er vænt verð á algengum gististöðum, á höfuðborgarsvæðinu og utan þess. Almennt er ferðakostnaði innanlands breytt tvisvar sinnum á ári, að vori og að hausti, til þess að endurspegla árstíðarsveiflu í kostnaði gistingar.
- Gisting og fæði í einn sólarhring kr. 38.500
- Gisting í einn sólarhring kr. 22.600
- Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag kr. 15.900
- Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 7.950
Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. nóvember 2023. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 1/2023.
Athygli er vakin á að meginreglan er að greiða skal kostnað vegna ferðalaga innanlands, s.s. fargjöld, fæði og gistingu, eftir reikningi. Fæðiskostnaður er uppreiknaður miðað við breytingar á viðeigandi vísitölu sem útgefin er af Hagstofu Íslands.