22. þjóðlagahátíð á Siglufirði hófst miðvikudaginn 6. júlí á yndislegum sólardegi, tónlistarmenn og sjálfboðaliðar setja líflegan svip sinn á bæinn.

Gunnsteinn Ólafsson stjórnar þessu öllu sem endranær og hefur ansi margt á sinni könnu.

Næstu daga verða 17 tónleikar, 3 ókeypis námskeið og þjóðlagaakademía.

Dagskrá hátíðarinnar í dag, föstudaginn 8. júlí er eftirfarandi.

Siglufjarðarkirkja kl. 20.00-21.00
Sefur þú, jarðarber? – Frönsk, spænsk og íslensk þjóðlög

Berta Dröfn Ómarsdóttir söngkona
Svanur Vilbergsson gítarleikari


Bátahúsið kl. 21.30-22.30
Líf og dauði í Mexikó

Svanlaug Jóhannsdóttir söngkona og sögumaður
Reynir Hauksson gítar
Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir fiðla
Eiríkur Rafn Stefánsson trompet
Óttar Sæmundsen bassi

Rauðka kl. 23.00-24.00
Töfrar afrísku trommunnar með Dans Afríka Iceland – Dansar frá Gíneu

Sandra Sano Erlingsdóttir
Mamady Sano
Alseny Sylla
Rubin Karl Hackert
Hugrún Inga Ragnarsdóttir
Cheick Ahmed Tidiane Bangoura