Stýrihópur um Heilsueflandi samfélag býður íbúum Fjallabyggðar á opið dansnámskeið sem haldið verður í Tjarnarborg.

Námskeiðið verður 6  sunnudagskvöld kl. 20:00 – 21:30, í fyrsta sinn sunnudaginn 9. febrúar. Danskennari verður Ingunn Hallgrímsdóttir. Þátttaka er endurgjaldslaus.

Allir velkomnir, ekki er nauðsynlegt að hafa dansfélaga til að mæta.

Dansnámskeiðið er byggt upp á stökum kvöldum þar sem ákveðið þema er hvert kvöld.   

Skipulag dansnámskeiðsins verður eftirfarandi:

9. febrúar: Gömlu dansarnir
16. febrúar:  Samkvæmisdansar (jive, cha cha cha og tjútt)
1. mars: Línudans
15. mars: Salsa
22. mars: Óákveðið, mögulega Zumba
29. mars: Óákveðið

Ekki er krafist skráningar á námskeiðið en búnir verða til viðburðir á Facebooksíðu Fjallabyggðar fyrir hvert kvöld fyrir sig.

Stýrihópur áskilur sér rétt til að færa til einstök kvöld ef aðstæður gera það óhjákvæmilegt. Breytingar á námskeiðinu ef einhverjar verða, munu verða auglýstar á heimasíðu Fjallabyggðar.

Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.