Unglingadeild Björgunarsveitarinnar Stráka er mjög virk og hressir krakkar sem eru framtíðar björgunarsveitarmenn fá að prófa allskonar æfingar. Á dögunum fóru þau að svamla í sjónum í flotgöllum og Ragnar Már Hansson fór með þau í sjóferð á Gústa.
Drónadeild Stráka notaði tækifærið og æfði leit á sjó með dróna sveitarinnar, frábært að geta æft notkun á hitamyndavélinni við raunaðstæður segir á heimasíðu Stráka.

Mynd: Ingvar Erlingsson
Viltu styrkja ungliðadeildina Smástráka?
Kennitala: 551079-1209
Reikningur: 0348-26-310
Netfang: smastrakar@gmail.com
Forsíðumynd/skjáskot úr myndbandi