Matvælastofnun varar við einni framleiðslulotu af  frönskum osti Morbier Tradition Émotion sem Aðföng ehf. flytur inn vegna gruns um E. coli myndandi shigatoxin smit.

Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlitið í Reykjavík tekið úr sölu og innkallað vöruna.

Neytendur sem keypt hafa umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í versluninni þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.

Einungis er verið að innkalla eftirfarandi framleiðslulotu:

Vöruheiti: Morbier Tradition Émotion

Nettómagn: 100g

Umbúðir: Plastumbúðir

Strikamerki: 3292790340085

Best fyrir dagsetning: 23/02/2025

Lotunúmer: 32021A105436

Geymsluskilyrði: KÆLIVARA, 0-4°C

Framleiðandi og framleiðsluland: Jean Perrin (FR 25 155 001 CE), Frakkland

Innflytjandi: Aðföng, Skútuvogi 7-9, 104 reykjavík

Dreifing: Verslanir Hagkaups