Matvælastofnun óskar eftir því að ráða eftirlitsdýralækni til starfa í Norðvesturumdæmi með aðsetur á Sauðárkróki. Um 100% stöðu tímabundið í ár er að ræða með möguleika á framlengingu og æskilegt að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
Eftirlitsdýralæknir sinnir fyrst og fremst eftirliti skv. gildandi lögum og reglugerðum á sviði matvæla og dýravelferðar, heilbrigðiseftirliti í sláturhúsum, samskiptum við opinberar stofnanir ásamt umsjón með tilteknum málaflokkum á verksviði umdæmisstofunnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Dýralæknismenntun og starfsleyfi sem dýralæknir
- Æskilegt er að umsækjandi hafi starfað við opinbert eftirlit
- Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
- Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku
- Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á ensku
- Góð almenn tölvukunnátta
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jón Kolbeinn Jónsson héraðsdýralæknir á netfanginu jon.jonsson hjá mast.is eða í síma 530 4800. Sótt er um starfið í þjónustugátt Matvælastofnunar undir „Eftirlitsdýralæknir í Norðvesturumdæmi“.
Umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og afrit af prófskírteini. Umsóknarfrestur er til og með 9. nóvember nk. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir. Vakin er athygli á því að umsóknir gilda í 6 mánuði nema umsækjandi ákveði annað. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og Dýralæknafélags Íslands.
Aðsent.