Ferðalög
Íbúum Íslands er eindregið ráðið frá ónauðsynlegum ferðalögum til áhættusvæða vegna COVID-19 nema vera full bólusett.
Ferðalög til Íslands
Sérstakar reglur gilda um ferðalög til landsins. Vakin er athygli á því að í reglugerðum um landamærin teljast allir farþegar ferðamenn, hvort sem þeir eru búsettir á Íslandi eða heimsóknargestir.
Reglur á landamærunum
Koma með vottorð um fulla bólusetningu eða vottorð um fyrri sýkingu COVID-19
Hér má finna flýtileið á ensku sem útskýrir helstu reglur sem gilda á landamærunum. Þessar upplýsingar eru eingöngu til leiðbeiningar en lokaákvörðun er alltaf í höndum landamæravarða við komuna til landsins.
Ferðalög til útlanda
Íbúum Íslands er ráðið frá ferðalögum til áhættusvæða án bólusetningar, en öll lönd og svæði erlendis eru nú skilgreind sem áhættusvæði vegna COVID-19.