Vegna gríðarlegrar úrkomu og skriðuhættu er vegfarendum eindregið ráðið frá því að aka Siglufjarðarveg.
Á Vestfjörðum og Norðurlandi er enn talsvert vatnsveður og möguleiki á að vatn flæði yfir veg. Þá er einnig möguleiki á grjóthruni og ökumenn því hvattir til að fara að öllu með gát.
Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar.
Erlendur Örn Fjelsted tók myndir í frétt þegar hann átti leið um Siglufjarðarveg ásamt fjölskyldu sinni í gærkvöldi.
Frétt hefur verið uppfærð.