Innkomin erindi varðandi lyktarmengun í Ólafsfirði voru tekin fyrir á 796. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar og var erindinu vísað til bæjarstjórnar.

Bæjarráð þakkaði íbúum, gestum tjaldstæðis og fyrirtækjum fyrir ábendingar vegna lyktarmengunar í Ólafsfirði frá starfsemi Norlandia.

Í ljósi ítrekaðra kvartana óskar bæjarráð eftir því að Heilbrigðisfulltrúi Norðurlands vestra komi á fund þess og kynni fyrir ráðinu eftirfylgniáætlun embættisins vegna eftirlits hausaþurrkunarverksmiðju Norlandia ehf, sbr. tillögu heilbrigðisfulltrúa frá september 2021 um íbúakönnun.

Bæjarráð telur mikilvægt að grunnur verði lagður að því að tryggja sanngjarna málsmeðferð gagnvart bæði íbúum og starfsemi Norlandia.