Í ljósi aðstæðna og hertra takmarkana hafa Ljótu hálfvitarnir aflýst fyrirhugðu tónleikahaldi Verslunarmannahelgarinnar í Miðgarði í Skagafirði, Valaskjálf á Egilsstöðum og á Græna hattinum á Akureyri.  Allir miðar verða endurgreiddir.

Það er að sjálfsögðu drullufúlt, en hitt væri enn verra segja Ljótu hálfvitarnir, að hjálpa veiruskrattanum að skjóta nýjum rótum.

Sjáumst aftur þegar rofar til á ný. Það má alveg hafa smá áhyggjur af því hvað það verður rosalegt segja þeir að lokum.