Þjóðskrá hefur gefið það út að alls voru 76.001 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. mars sl. og fjölgaði þeim um 1.578 einstaklinga frá 1. desember 2023 eða um 2,1%. Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 317 einstaklinga eða um 0,1%.

Ríkisborgurum frá Úkraínu og Palestínu heldur áfram að fjölga. Úkraínskum ríkisborgurum fjölgaði um 279 eða 7,1% og ríkisborgurum frá Palestínu fjölgaði um 51 eða 9,5%. Pólskum ríkisborgurum fjölgaði um 85 og eru nú 25.697 pólskir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi.

Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 317 einstaklinga eða um 0,1%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. mars 2024 til samanburðar við stöðuna 1. desember 2019-2023.

Mynd/iStock