Sveitarfélagið Skagafjörður hefur hafið undirbúning að jólagjöfum starfsmanna sveitarfélagsins fyrir næstu jól. Við erum að leita að vörum sem eru t.d. praktískar, fallegar, bragðgóðar, heima úr héraði o.s.frv. sem gaman væri að gefa fjölbreyttum hópi starfsmanna sveitarfélagsins.

Ef þú hefur vöru á þínum snærum sem þú telur að gæti verið sniðugt í jólapakkann og vilt koma á framfæri þá máttu gjarnan senda upplýsingar um vöruna og kostnað á skagafjordur@skagafjordur.is fyrir 15. ágúst nk. Við munum þurfa ríflega 400 stykki sem þurfa að afhendast í byrjun desember 2019.

Nánari upplýsingar veita:

Hrefna G. Björnsdóttir, mannauðsstjóri: 455-6065, hrefnag@skagafjordur.is
Sigfús Ólafur Guðmundsson, verkefnastjóri: 455-6170, sigfusolafur@skagafjordur.is
Heba Guðmundsdóttir, verkefnastjóri: 455-6017, heba@skagafjordur.is


Forsíðumynd: Sara Jóna Emelía eftir vatnslitamynd sem hún málaði

Af skagafjordur.is